Lækni vísað úr landi!

Í gær hitti ég góðan vin minn. Hann hefur um 15 ára háskólanám í læknisfræði og kom hingað heim með fjölskylduna fyrir nokkrum árum. Keypti sér fljótlega íbúð og stækkaði við sig 2007. Fjölskyldan var með tvo bíla. Að ráðgjöf bankans voru lánin í erlendri mynt.

,,Sonur minn reiknaði út fyrir mig hvaða laun ég þyrfti að fá til þess að ná sömu heildar ráðstöfunartekjum og bróðir minn, en sá er með kr. 560.000 í laun. Hann fær persónuafslátt sem ég fékk ekki á meðan ég var í námi, og ég þarf að greiða af námslánum sem hann þarf ekki að gera. Það verður erfitt að ná sömu kjörum og bróðir minn hefur náð. Þ.e. heildarlífstekjum."

,, Nú koma þær fréttir frá ríkisstjórninni að ég stend ekki jafnfætis öðrum, hvað varðar 110% regluna, um afskriftir af því að ég hef svo háar tekjur. Skuldir mínar eru umfram eignir, þannig að það er verið að vísa mér úr landi" sagði læknirinn. Þegar einnig er tekið tillit til þess að auka á tekjutengingar þá á ég engan möguleika. Við erum búin að fá vinnu úti, og erum að pakka niður. Bankinn og lánastofnanir fá lykilinn að húsinu og bílunum" 

Fer í norræna velferðarkerfið, úr þessu hér, sem er eitthvað allt annað. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hörður Þórðarson

Gott blogg. Hugsjón vinstri manna er sú að það engu skuli skipta hversu mikið þú leggur á þig til að mennta þig,  það skal engu skipta hversu mikla aukavinnu þú vinnur, það skal engu skipta þó þú vinnir um nætur, þeir munu reita það allt saman af þér og nota peningana í rugl á borð við sendiráð, sendiherra og sýndarmennsku á borð við stjórnlagaþing.

Ef þú vilt bera einhvern ávöxt af þinni vinnu skaltu vinsamlega hypja þig til útlanda, annars verður þú skertur og skattlagður niður á sama plan og þeir sem nenna ekki upp úr rúminu á morgnana.

Takk Steingrímur.

Hörður Þórðarson, 8.12.2010 kl. 07:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sigurður Þorsteinsson

Höfundur

Sigurður Þorsteinsson
Sigurður Þorsteinsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Þor
  • Þor
  • Birna Einarsdóttir
  • Birna Einarsdóttir
  • kjöt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband